Óbærilegur "þungleiki" tilverunnar
Jæja þá er ég einu sinni enn komin með nýja síðu, ég fékk bara allt í einu ógeð á blog.central síðunni og ákvað að reyna þessa og mér er bara að líka ágætlega við hana.
Það er ýmislegt miður skemmtilegt búið að gerast í lífi mínu seinustu mánuði, og er fráfall pabba það einna versta.....vá ritstífla dauðans.... jæja ég held að ég sleppi bara að tala um þennan part, nógu erfitt án þess að vera rifja þetta upp aftur og aftur.
En jæja núna er nýtt ár gengið í garð og það byrjar ekkert sérstaklega vel, ég er á hvínandi kúpunni og ég er ekki bara að segja þetta til að nota þessa skemmtilegu lýsingu, nei ég er svo blönk að ég get ekki einu sinni fyllt á frelsið mitt, æ lífið er stundum svo pirrandi, ég meina hafiði litið út um gluggan.... það er allt hvítt, það er erfitt að komast leiðar sinnar, nánast út úr húsi, og ég er á sumardekkjum, þetta fer að verða smá hættulegt held ég og hvet ég alla sem sjá mig á ferðinni að forða sér, bara svona til að vera viss um að lifa af daginn.
Svo til að toppa allt er ég atvinnulaus, ég komst ekki inn í tannlæknadeild, en ætla mér að taka þetta næsta haust, þannig að þeir sem vilja panta tíma hjá mér árið 2012 endilega hringið þá.
Ég er núna í smá svartri vinnu á gamla vinnustaðnum mínum, sem er í sjálfu sér í góðu lagi, nema það að ég er greinilega búin að hafa það alltof gott síðasta ár (að sítja á rassinum og læra) og þessi fyrsti dagur, var smá erfiður ég var að deyja í fótunum, er komin með smá tak í bakið og er bara alveg dauðþreytt, en vonandi fer heilsan og hreystið að batna, maður er nú einu sinni komin í átak, sem er þrisvar í viku, smá puð alveg frá 13-17 en það er þess virði svo ég geti nú alla vega staðið og afgreitt snúða án þess að vera deyja úr verkjum.
En ég er nú búin að sækja um eina vinnu, og fer í atvinnuviðtal á fimmtudag hjá verslun sem selur pípulagningavörur...held ég. Allir að krossa putta svo mér gangi nú vel.
Ég er ekki búin að hafa neitt að gera undanfarið þannig að ég er búin að vera lesa á fullu, búin með 10 bækur síðan um áramótin, kannski sönnun á því að ég eigi ekkert líf....en ég segi hins vegar að ég eigi mér líf... á bara eftir að sanna það.
Jæja ég nenni þessu ekki lengur, hausinn er núna alveg tómur... þannig að ég ætla að hætta í bili og jafnvel fara skríða undir sæng....og lesa.
Blæ blæ og kossar

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home