Upptekin?
Hæ, það er alltof langt síðan ég skrifaði síðast, og nokkuð mikið búið að gerast. Eitt það stærsta er að ég er kominn með kærasta, og ég er ekkert smá hamingjusöm, hann er svo yndislegur og góður við mig og það besta er að við erum líka góðir vinir sem er alveg rosalega mikilvægt, við getum talað um allt milli himins og jarðar og skemmtum okkur vel saman, svo líkar honum við fjölskyldu mína og vini, og það er bara æðislegt.
Hvað annað hefur gerst........ég er búin með prógrammið á Reykjalundi og gekk það bara nokkuð vel, ég er nokkrum kílóum léttari og þó nokkuð fróðari, sem er alltaf plús. Ég er enn atvinnulaus og finnst mér það ganga mjög hægt að finna vinnu, og núna er verið að fara þó nokkuð illa með mig, ég er á atvinnuleysisbótum til að geta borgað reikninga og halda mér uppi og svona, en nei vegna þess að ég vildi ekki taka fyrstu vinnuna sem mér var boðið (eða réttara sagt nánast neydd til að taka) fæ ég ekki bætur næstu 40 stimplaða daga, sem meikar ekki sens þar sem ég á að geta neitað vinnu alla vega 2svar áður en ég missi bætur, ég er búin að skrifa bréf sem var tekið fyrir á fundi hjá úthlutunarnefnd í dag og vonandi hlusta þeir á það sem ég hef að segja, en ef það gengur ekki mun ég kæra, og svo eftir það er bara að bíða og sjá. Ég er búin að vera leita að vinnu hér og þar, en finn voða lítið spennandi. Ég ætla nú samt ekki að gefa upp vonina og held ótrauð áfram.
Núna ætla ég að fara tækla þetta heimaverkefni sem Kiddi setti fyrir.....og nei perrarnir ykkar það tengist ekki kynlífi, heldur á ég að teikna 2 myndir fyrir hann, hann er þónokkuð góður teiknari og er búinn að smita mig af teiknibakteríunni, og nú vill hann að ég fullklári 2 myndir sem sagt teikni andlit ekki bara hausinn.
Jæja ætli ég fari ekki að hella mér í þetta.
Blæ blæ og kossar

3 Comments:
Jæja Peta mín er búin að laga þetta, getur commentað á þetta eins og þú vilt núna :)
Sæl Tinna vertu nú dugleg að blogga
Maja Grænuhlíð
www.folk.is/majafb
Jibbý, maður er ekkert smá fordekraður, vælir bara þangað til það er hlustað á mann:) Annars myndi ég nú eitthvað hafa áhyggjur af geðheilsu nýja kærastans, commentið um að hann væri að fíla fjölskylduna þína, humm, er nú kannski ekki sálfræðingur en finnst það benda til þess að hann eigi við alvarlegt vandamál að stríða:) Gott að þú ert farin að teikna, hlakka til að sjá:)
Skrifa ummæli
<< Home