þriðjudagur, maí 23, 2006

Margt að gerast

Hæhæ langt síðan síðast, það er bara heilmikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast, við fórum vestur og hittum sveitalubbana þar, það var mjög gaman, Kiddi var þá að hitta í fyrsta skipti Víðir og Baddý og held ég barasta að öllum hafi líkað vel við hann, honum líkaði alla vega mjög vel við þau, ferðin vestur gekk nú ekki tíðindalaust fyrir sig, haldiði ekki að við (ég) gleymdum að taka bensín í Búðardal og við komumst rétt svo í símasamband í Brjánslæk, þá kom hún yndislega systir mín hún Klara og bjargaði okkur.
Við eyddum helginni á Bíldudal í geðveikislega góðu veðri, og það var nú ekkert verra þegar við komum aftur í bæinn.
Ég er búin að kaupa bassa ekki þann sem ég ætlaði að kaupa en þessi er nú eiginlega bara flottari, ég er að verða ágæt að spila á hann, þó að Kidda finnist ég ekki alveg nógu dugleg.
Við erum búin að fá ibúð og flytjum inn núna um mánaðarmótin, við getum varla beðið, hún er uppí breiðholti, sem er bara nokkuð þægilegt upp á mína vinnu, svo er þetta líka geðveikt rólegt hverfi sem er æðislegt, þar sem við erum nú frekar róleg sjálf.
En jæja ég hef voða lítið annað að segja, blogga aftur þegar við erum komin í nýju íbúðina.

Blæ blæ og kossar.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ

01 júní, 2006 19:02  
Anonymous Nafnlaus said...

hvað segir min svo gott blogga meira:)

18 júní, 2006 20:39  
Anonymous Nafnlaus said...

Heyrðu, ertu bara hætt. Ekki viðunandi væna mín. Blogga, blogga. Nú sér maður þig aldrei:)

03 júlí, 2006 19:41  
Anonymous Nafnlaus said...

þetta fer að koma er eitthvað svaka löt þessa dagana, þú ert nú ekkert duglegri ;) systir góð :)

04 júlí, 2006 23:26  
Anonymous Nafnlaus said...

ha, ha, ég er líka búin að blogga væna mín og nú má ég alveg hnýta í þig. Það þýðir ekkert að hætta bara að blogga þó að maður nái sér í sætan strák og flytji til fjalla. Hlustum nú ekki á svoleiðis skal ég segja þér:)

24 júlí, 2006 19:29  

Skrifa ummæli

<< Home