fimmtudagur, mars 02, 2006

Kirtlar

Jæja það er ýmislegt búið að gerast síðan ég bloggaði seinast, til dæmis þá er ég komin með vinnu og er farin að vinna hjá ÁTVR....sem er bara mjög fínt, nú get ég hætt að hanga heima og gera ekki neitt, ég er núna hinsvegar í veikindafríi þar sem hálskirtlarnir þurftu að fjúka, mér líður bara ágætlega er svolítið vont að kyngja en þetta verður allt betra á næstu dögum, og svo vonandi lagast heilsan enn betur eftir þetta, en ég er nánast búin að vera kvefuð síðan í október. Ég er enn í smá baráttu við að fá atvinnuleysisbæturnar og er ég búin að kæra þennan úrskurð, þannig að vonandi fer eitthvað að gerast í þessu....ég held að ég hafi bara ekkert meira að segja, ég sem hélt að þetta yrði alveg svaka langt, en jæja bara meira næst.

Blæ blæ og kossar