Ég er löt....ég veit það, gerði mér grein fyrir því fyrir langa löngu.
Ástæða þessarar játningar er sú að það er allt of langt síðan ég bloggaði seinast, ég bið alla sem eru forvitnir um líf mitt afsökunar, en kannski er það nú óþarfi þar sem voða fáir virðast skoða þetta hjá mér....alla vega er öllum sama um það að það líði meira en mánuðir milli blogga, en mér er alveg sama um það, ég held samt áfram ótrauð.
Það er ekkert voða mikið búið að vera gera hjá mér þennan mánuðinn, var í veikindafríi fyrstu 10 daga mánuðarins, þá hélt ég að geðheilsan myndi algjörlega fara þá...ég veit að hún hefur nú aldrei verið uppá marga fiska en þarna var hún nú orðin hættulega illa farin.
Kiddi er fluttur inn til mín og erum við að leita okkur að íbúð til að leigja, þannig að ef einhver veit um sæta 2ja herbergja íbúð handa okkur á sanngjörnu verði endilega látið okkur nú vita.
Eins og flestir vita eru Sunna og Gerald flutt á efri hæðina hjá okkur og eru miklar framkvæmdir þar í gangi, en bað- og svefnherbergið voru ekki í allt of góðu standi, mamma og Hrefna eru búnar að vera úber duglegar að panel leggja svefnherbergið.
Kiddi keypti sér rafmagnsgítar fyrir helgi, og er hann varla búin að sleppa honum, enda nokkuð skiljanlegt, ég er svo líka að fara kaupa mér hljóðfæri, eða nánar tiltekið bassa, en ég fann einn á netinu sem ég varð bara ástfangin af, enda er hann ekkert smá sætur hér er mynd:

það er búið að panta hann, þannig að núna þarf ég bara að bíða.
Ég er, eins og ég hef áður sagt, að vinna hjá Átvr, það er bara ágætlega gaman nóg að gera og dagurinn er fljótur að líða, það er samt ótrúlegasta fólk sem maður lendir í að afgreiða. í dag komu 2 vesalings rónar inn rétt fyrir lokun til að kaupa vodka, maður getur ekki annað en vorkennt þeim, enginn á skilið að lifa svona, mér er alveg sama þó að þetta sé að miklu leyti þeim sjálfum að kenna, það er hræðilegt að sjá þetta, þeir eru líka allir upp til hópa kurteisir sem er ekki hægt að segja um alla aðra sem versla hjá okkur, það að Íslendingar geti ekki beðið í biðröð er ótrúlegt, ég meina þegar það eru 2 á undan þér (sem dæmi, gerðist samt í dag) sem eru bara með eina kippu hvor, og þú nánast heimtar að ég fái einhvern annan til að afgreiða þig um þessar 2 bailey´s sem þú ert að fara kaupa, þetta gerist nánast daglega, íslenskt þjóðfélag er orðið alltof stressað, allir ættu að fara á námskeið í að standa í biðröð og bara versla yfir höfuð, þetta að koma 5 mínútum fyrir lokum er bara ekki nógu sniðugt, og að vera með kjaft við afgreiðslufólk vegna nokkurra króna hækkunar, við (afgreiðslufólk) stjórnum ekki verðhækkunum, reynum að muna það næst þegar farið er að versla.
Afsakið þessa ræðu, er bara orðin smá pirruð á því hvernig fólk í dag verslar, jæja þetta er nóg í bili.
Blæ blæ og kossar