Margt að gerast
Hæhæ langt síðan síðast, það er bara heilmikið búið að gerast síðan ég bloggaði seinast, við fórum vestur og hittum sveitalubbana þar, það var mjög gaman, Kiddi var þá að hitta í fyrsta skipti Víðir og Baddý og held ég barasta að öllum hafi líkað vel við hann, honum líkaði alla vega mjög vel við þau, ferðin vestur gekk nú ekki tíðindalaust fyrir sig, haldiði ekki að við (ég) gleymdum að taka bensín í Búðardal og við komumst rétt svo í símasamband í Brjánslæk, þá kom hún yndislega systir mín hún Klara og bjargaði okkur.
Við eyddum helginni á Bíldudal í geðveikislega góðu veðri, og það var nú ekkert verra þegar við komum aftur í bæinn.
Ég er búin að kaupa bassa ekki þann sem ég ætlaði að kaupa en þessi er nú eiginlega bara flottari, ég er að verða ágæt að spila á hann, þó að Kidda finnist ég ekki alveg nógu dugleg.
Við erum búin að fá ibúð og flytjum inn núna um mánaðarmótin, við getum varla beðið, hún er uppí breiðholti, sem er bara nokkuð þægilegt upp á mína vinnu, svo er þetta líka geðveikt rólegt hverfi sem er æðislegt, þar sem við erum nú frekar róleg sjálf.
En jæja ég hef voða lítið annað að segja, blogga aftur þegar við erum komin í nýju íbúðina.
Blæ blæ og kossar.